Heilsugæslustöðin Búðardal



Starfssvæði


Heilsugæslustöðin Búðardal þjónar svæði sem nær yfir þrjú sveitarfélög: Dalabyggð, Saurbæjarhrepp og Reykhólahrepp. Þetta er Dalasýsla öll og sá hluti Barðastrandarsýslu sem áður hét Austur-Barðastrandarsýsla. Starfssvæðið nær því frá Álftafirði í suðvestri og Bröttubrekku í suðri og allt norður og vestur á Litlanes milli Kerlingarfjarðar og Kjálkafjarðar í norðri. Svæðið er afmarkað með rauðu á kortinu.
 

Vefsmíði: Þórður Ingólfsson
Síðan var síðast uppfærð: 20. febrúar 2003