|
| |
Heilsugæsla í skólum
|
Heilsugæslustöðin hefur með höndum heilsugæslu í
þremur grunnskólum: Grunnskólanum í Búðardal, Grunnskólanum í
Tjarnarlundi og
Reykhólaskóla.
Heilsugæsla í skólum er að sumu leiti framhald
ungbarnaverndarinnar en við bætist að sérstaklega er reynt að fylgjast
með líðan barnanna í skólanum og að uppgötva og bregðast við
vandamálum sem sérstaklega tengjast skólagöngunni.
|
|
Hverjum nemanda er gefinn kostur á viðtali við hjúkrunarfræðing
og/eða lækni árlega. Þeim nemendum sem eitthvað athugavert hefur fundist
hjá er sérstaklega fylgt eftir. Sérstök áhersla er lögð á að sinna
börnum sem eru í áhættuhópi vegna líkamlegra, sálrænna eða
félagslegra vandamála. Náin samvinna er við kennara, skólayfirvöld og sérfræðiþjónustu
skólanna.
Sérstakar reglubundnar athuganir eru gerðar samkvæmt eftirfarandi skema
sem byggir á leiðbeiningum landlæknisembættisins:
| Bekkur |
Athuganir |
Ónæmisaðgerðir |
| 1. |
Hæð, þyngd, sjón og heyrn
Læknisskoðun og viðtal, gjarna með foreldrum |
|
| 2. |
Sjón |
|
| 4. |
Hæð, þyngd og sjón
Hryggskoðun |
|
| 7. |
Hæð, þyngd, sjón og litaskyn |
Rauðir hundar, mislingar og
hettusótt (1 sprauta) |
| 9. |
Sjón og heyrn
Viðtal við lækni |
Mænusótt, stífkrampi og
barnaveiki (2 sprautur) |
Skipulag skólaheilsugæslunnar er nú til
endurskoðunar og verður e.t.v. með breyttu sniði í framtíðinni.
|