Fólínsýra á meðgöngu
Rannsóknir hafa sýnt að ef móðir tekur
nægjanlegt magn Fólínsýru í nokkrar vikur fyrir getnað og fyrstu
vikurnar eða mánuðina á meðgöngunni þá dregur það verulega úr
líkum á ákveðnum tegundum fósturskaða. Skaðarnir sem um ræðir eru
gallar í myndun og þroska miðtaugakerfisins og geta valdið verulegri
fötlun.
Fólínsýra (líka kölluð fólasín) er eitt af
B-vítamínunum og er sérstaklega að finna í grænmeti og ávöxtum. Því
eru konur (og reyndar karlar líka) hvattar til að borða mikið af þessum
fæðutegundum. Til að tryggja að kona fái nægjanlega Fólínsýru er þó
oft mælt með að hún taki Fólínsýru jafnframt á töfluformi.
Við hvetjum konur sem huga að barnseignum eða vita
að þær eru nýlega þungaðar að hafa samband við lækni til að ræða
þessi mál. Mikilvægt er að nægjanleg neysla vítamínsins hefjist snemma
og helst nokkrum vikum fyrir getnað ef hægt er.
Fræðslubæklingur landlæknisembættisins um Fólasín
er hér.