Tannlæknir:
Haraldur Arngrímsson, tannlæknir hefur aðstöðu á
heilsugæslustöðinni. Hann sinnir almennum tannlækningum, jafnt
fyrirbyggjandi starfi sem tannviðgerðum.
Sími á tannlæknastofunni er 434 1445.
|
 |
Lyfsala:
|
|
|
Lyfsalan í Búðardal er innan veggja
Heilsugæslustöðvarinnar.
Öll almenn lyfjaafgreiðsla fer þar fram. Opnunartími Lyfsölunnar er hinn sami og
Heilsugæslustöðvarinnar og sími er einnig sameiginlegur. Starfsmaður
Lyfsölunnar er Díana Ósk Heiðarsdóttir. |
| Lyfsalan rekur einnig útibú
á Heilsugæslustöðinni á Reykhólum þar sem reynt er að eiga til algeng lyf og
mikilvægustu bráðalyf. |
Sérfræðingar:
|
|
|
| Guðrún Guðmundsdóttir, augnlæknir kemur á
3 mánaða fresti og hefur móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal.
Í 3 af
þessum 4 ferðum á ári fer hún einnig vestur á Reykhóla. Guðrún er annars með stofu
sína á Akranesi og í Reykjavík. |
 |
| Háls- nef- og eyrnalæknir kemur einnig 4 sinnum
árlega í Búðardal, það er Þórir Bergmundsson. Hann starfar annars á
Sjúkrahúsi Akraness og á Heyrnar- og talmeinastöðinni í Reykjavík. |
Sjúkraþjálfun:
Því miður er enginn sjúkraþjálfari fastráðinn
við Heilsugæslustöðina en reynt hefur verið að fá sjúkraþjálfara til
að koma og vera einhvern tíma í senn og taka fólk til meðferðar
samkv. tilvísunum frá læknum stöðvarinnar.
|
Krabbameinsskoðun:
|
|
|
Á vegum
Krabbameinsfélagsins fer fram leit að
krabbameini í leghálsi og í brjóstum á tveggja ára fresti. |